![Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar.]()
„Mér finnst þetta vera fáránleg sóun,“ sagði Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, á Alþingi í dag. Þar vísaði hún til þess að árlega væri fullgóðum bjór hellt niður vegna þess að samkvæmt reglugerð á vegum fjármálaráðuneytisins væri óheimilt að selja til dæmis jólabjór og páskabjór nema á ákveðnum tímum.