![Róleg og skemmtileg stemning myndast á tjaldsvæðinu.]()
„Þegar veðrið er gott er svo til alltaf fullt hjá okkur,“ segir Unnar Bergþórsson, umsjónarmaður tjaldsvæðisins á Húsafelli, í samtali við mbl.is. Eins og fram hefur komið er búist við 22 stiga hita á Húsafelli um helgina. Tjaldsvæðið er eingöngu ætlað fjölskyldufólki og stemningin þar því þægileg.