![]()
„Auðvitað þarf að gera eitthvað í þessu svæði. Kannski byggja 50 lítil raðhús eða eitthvað sætt og huggulegt en ekki 100-120 íbúðir og tvo hótelturna.“ Þetta segir Margrét Gígja Þórðardóttir, en hún er meðal íbúa í Teigahverfinu sem eru á móti áætlunum Reykjavíkurborgar um svokallaðan Blómavalsreit.