![Ránið var framið í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði 22. október sl.]()
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á ráni í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði í október er á lokastigi. Einn mun sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þar til dómur fellur í málinu enda talinn hættulegur. Aðeins lítill hluti af þýfinu hefur fundist.