![Breska orrustuskipið HMS Valiant.]()
Meðal þeirra atburða sem vöktu mikla athygli á árum síðari heimsstyrjaldarinnar var árás ítalskra froskmanna á höfnina í borginni Alexandríu í Egyptalandi 19. desember 1941 þar sem þeim tókst að valda miklum skemmdum á bresku orrustuskipunum HMS Queen Elizabeth og HMS Valiant auk þess sem skemmdir urðu einnir á tundurspillinum HMS Jarvis og olíuskipi í höfninni.