![Sem betur fer lenti kraninn á götunni, ekki á öðrum bíl.]()
Mildi þykir að ekki fór verr þegar vörubíll með krana keyrði á brúna milli Kópavogs og Garðabæjar á Hafnarfjarðarvegi áðan. „Hann var sennilega á 80 kílómetra hraða og kraninn á bílnum var líklega of hátt uppi því hann fór beint í brúna,“ segir Jóhann Jean Le Sage við mbl.is.