![Jón Eggert hefur æft frá því í vetur fyrir strandhringinn og hjólar nú um 2.000 km á mánuði.]()
Jóni Eggerti Guðmundssyni dugar ekki að hafa gengið strandveginn í kringum Ísland, því nú í sumar hyggst hann fara sömu leiðina hjólandi. „Þetta er eiginlega bara bilun. Mér datt í hug þegar ég var að labba þetta, að hjóla þetta einhvern tímann seinna,“ segir Jón Eggert.