![]()
Útskipun á áli hélt áfram við álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík í dag og sáu stjórnendur fyrirtækisins um verkið. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir flutningaskipið nú nær fulllestað og mun það á morgun leggja af stað úr höfn með 4.027 tonn af áli.