![Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki sannreynt að framleiðslan uppfylli ákvæði laga um hollustuhætti í matvælaframleiðslu. Myndin úr safni.]()
Matvælastofnun hefur stöðvað markaðssetningu afurða frá Sláturhúsinu Seglbúðum ehf. í Skaftárhreppi. Eftirlitsmönnum Matvælastofnunar var nýlega meinaður aðgangur að húsnæðinu og mun stofnunin ekki heimila dreifinga afurða frá sláturhúsinu fyrr en nauðsynlegt eftirlit hefur farið fram.