![Icelandic Water Holdings flytur út vatn undir merkinu Icelandic Glacial.]()
Hæstiréttur hefur vísað máli iGwater á hendur Icelandic Water Holdings frá dómi. Var úrskurður Héraðsdóms Suðurlands þar með staðfestur. Hæstiréttur segir að málatilbúnaður iGwater hefði verið svo verulega vanreifaður að óhjákvæmilegt væri að vísa málinu frá héraðsdómi.