![]()
Samið var í kjaradeilu vélstjóra og skipstjórnamanna á kaupskipum á fjórða tímanum í nótt. Búið er að semja um launalið samningsins en enn á eftir að ganga frá sjálfum kjarasamningum, að sögn Guðmundar Ragnarssonar, formanns VM. Verkfallinu hefur því verið frestað til 12. febrúar.