![Eldurinn var mikill í upphafi.]()
Rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á eldsvoða á Saurbæ í Dölum í nótt er í fullum gangi. Karlmaður, sem er grunaður um að hafa kveikt í Hótel Ljósalandi, hefur verið yfirheyrður sem og sjónarvottar. Hann er enn í haldi lögreglu og líklegt þykir að lögreglan fari fram á gæsluvarðhald yfir honum.