![Gæsin Frostrós skömmu eftir að hún var fönguð.]()
Hafnfirsku dýravinunum í Óskasjóði Púkarófu var á dögunum greint frá því að gæs lægi við útidyr í Lækjargötu í Hafnarfirði, nær dauða en lífi. Hún hafði gengið þangað frá tjörninni við Lækjargötu og svo virðist sem hún hafi ætlað að leita inn í hlýjuna.