![Grænlandsjökull hefur bráðnað mikið á undanförnum árum eftir því sem hitastig jarðar hefur hækkað.]()
Borgarísjakar sem brotna af Grænlandsjökli valda jarðskjálftum sem geta verið rúmlega fimm að stærð og slíkum skjálftum hefur fjölgað mikið frá því á 10. áratug síðustu aldar eftir því sem jökullinn hefur bráðnað meira. Árlega bráðna um 378 milljarðar tonna af ísnum og hækka yfirborð sjávar.