![Á nokkrum stöðum í Eldvörpum kemur reykur upp úr hrauninu, eins og um nýlegt hraun sé að ræða. Það er aftur á móti frá 13. öld.]()
Gígaröðin í Eldvörpum er eins og smækkuð útgáfa af Lakagígum og þá er hún aðgengileg flestum á hvernig bíl sem er og aðeins í hálftíma fjarlægð frá alþjóðaflugvelli. Þetta segir Ellert Grétarsson, áhugamaður um umhverfisvernd. Hann hefur bent á að boranir á svæðinu jafngildi eyðileggingu.