![Kókaínið sem fannst í fórum fólksins. Um er að ræða 4 kg.]()
Íslenska parið sem er í gæsluvarðhaldi í Brasilíu, grunað um að hafa ætlað að smygla kókaíni, gæti hlotið 15 ára fangelsisdóm. Það telst vera skipulögð glæpastarfsemi séu tveir eða fleiri að verki og í þeim tilvikum eru dómarnir þyngri. Þetta segir Miriam Guerra D. Másson, brasilískur lögmaður.