![Reipið var bundið þéttingsfast um háls Nóa litla.]()
„Nú sit ég heima og græt yfir mannvonskunni sem er til í heiminum,“ skrifar Fransiska Guðrún Hoffmann í færslu á Facebook. Í færslunni er mynd af reipi sem var bundið um háls kattarins Nóa þegar hann kom aftur heim til sín eftir um 18 tíma útivist, rennandi blautur, svangur og stokkbólginn um hálsinn.