![Svona auglýsingu sér maður ekki á hverjum degi. Flugvöllur leitar eiganda þriggja flugvéla. Þetta birtist í blaðinu The Star í gær.]()
Flugvöllurinn í Malasíu leitar að eiganda þriggja flugvéla sem hafa staðið yfirgefnar í nokkur ár. Þoturnar virðast vera á íslenskum skráningarnúmerum og voru í eigu Air Atlanta. Þær voru hins vegar færðar út úr rekstri félagsins árið 2010 að sögn Baldvins Más Hermannssonar, markaðsstjóra félagsins.