![Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis er ákærður í tveimur af þremur ákæruliðum í málinu. Meðal annars fyrir 20 milljarða útlán til Stím.]()
Línur eru farnar að skýrast aðeins í Stím-málinu eða þá að þær eru að verða óskýrari eftir því hvernig málið snýr. mbl.is tekur saman stöðu málsins, en í það blandast friðhelgi uppljóstrara, fyrrum samstarfsmenn sem vitna gegn hvor öðrum, frægir viðskiptamenn og ásakanir um marg milljarða fjárdrátt.