![Darren Huckerby á seinna hundraðinu í leiknum gegn Gróttu.]()
Darren Huckerby, 39 ára miðherji öldungaliðs Norwich City, fær langa og háa sendingu fram völlinn. Eins og manni sem á að baki 465 leiki sem atvinnumaður sæmir drepur hann tuðruna niður á túkalli. Eðlið býður honum ekki annað en að leggja strax til atlögu við markið.