![Perlan að sökkva í Reykjavíkurhöfn]()
Sanddæluskipið Perla sökk í Reykjavíkurhöfn í morgun en verið var að sjósetja skipið eftir að hafa verið í slipp. Að sögn vaktstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er búið að koma öllum frá borði. Um mannleg mistök er að ræða, segir framkvæmdastjóri Slippsins.