![Í vindi og þurrki er oft svartamyrkur vegna leirs sem fýkur.]()
Bændur á Búlandi, efsta bænum austan í Skaftártungu, búa sig nú undir hlaup úr Eystri-Skaftárkatli. Ganga þarf úr skugga um að engar kindur séu meðfram ánni og þá hafa líka verið sóttar hestakerrur í Skaftárdal en hætt er við að vegurinn þangað fari í sundur í hlaupinu.