![Mikill fjöldi mótmælenda er samankominn á Austurvelli.]()
Útsending er nú hafin frá Austurvelli þar sem þjóðhátíðardegi Íslendinga er fagnað með hefðbundnum hætti í skugga háværra mótmæla. Þegar þetta er skrifað flytur Sigmundur Davíð hátíðarræðu sína og hafa mótmælendur færst allir í aukanna, berja trommur og önnur áhöld, púa og flauta.