![Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra.]()
Sjávarútvegsráðherra og sendiherra Rússlands á Íslandi ræddust við á óformlegum fundi í dag. Farið var yfir stöðuna sem uppi er í samskiptum ríkjanna, vegna ákvörðunar Rússa um að setja innflutningsbann á íslenska matvöru. Ráðherra benti á það að bann Rússa væri mun þyngra högg fyrir íslenskt efnahagslíf, en annarra þjóða.