![Magnús Garðarsson, stofnandi United Silicon.]()
Ritstjóri DV, ábyrgðarmaður DV.is og fyrrverandi blaðamaður blaðsins voru yfirheyrðir í morgun en ríkissaksóknari hefur falið lögreglustjóranum á Vesturlandi að rannsaka upplýsingaleka til DV. Blaðið birti fréttir af meintum hraðakstri Magnúsar Ólafs Garðarssonar, stofnanda United Silicon, en hann höfðaði mál á hendur lögreglustjóranum á Suðurnesjum fyrir upplýsingaleka.