![Sum svæði á Íslandi gætu allt eins verið á Mars eins og Námaskarð.]()
Ef sandurinn á Íslandi væri ekki svartur heldur rauður gæti landslagið hér verið á Mars, að sögn James Rice, yfirjarðfræðings könnunarjeppaleiðangra NASA. Vettvangsrannsóknir hér á landi hafa hjálpað vísindamönnum að skilja jarðmyndanir sem þeir sjá á myndum frá Mars og ráða í jarðsögu hans.