![Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands.]()
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við HÍ, telur að ýmis pólitísk og efnahagsleg vandamál muni fylgja því að afnema höftin. Líklegt sé að stjórnvöld stigi ekki mjög stór skref í átt að afnámi fyrir næstu kosningar. Þau vilji fremur tryggja þann stöðugleika sem höftin hafa að ákveðnu leyti veitt.