![Krónan er ofmetnasti gjaldmiðill í heimi, samkvæmt kenningum hamborgarahagfræðinnar.]()
Íslenska krónan er ofmetnasti gjaldmiðill í heimi, að minnsta kosti ef marka má Big Mac-vísitöluna svonefndu. Krónan þyrfti að veikjast talsvert gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum í heimi til þess að verð á hamborgaranum sívinsæla í þeim löndum verði það sama og hér á landi í krónum talið.