![Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað í dag og mun að mati sérfræðinga halda áfram að lækka á næstunni.]()
Gera má fastlega ráð fyrir því að heimsmarkaðsverð á olíu lækki eftir að samkomulag náðist í Vín í morgun um kjarnorkuáætlun Írans. Sú lækkun ætti að skila sér til íslenskra neytenda, að sögn Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda.