![Gestir bíða í röðum eftir áritunum og myndum með Gunnari.]()
„Allir vilja áritanir og myndir með Gunna,“ segir Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, en hann er einn fjölmargra Íslendinga sem dvelja nú í Las Vegas ásamt Gunnari Nelson. Þeir félagar eru með herbergi á glæsihóteli í borginni, en dvelja þó lítið þar vegna ágangs annarra hótelgesta.