![Þingvellir.]()
Þingvallanefnd hefur ákveðið að hefja innheimtu bílastæðagjalds á afmörkuðum bílastæðum á Þingvöllum, í fyrsta lagi á Hakinu við efri enda Almannagjár en þar er gestastofa þjóðgarðsins; í öðru lagi á svokölluðu Þingplani þaðan sem gengið er upp í Almannagjá af Efrivöllum og í þriðja lagi skv. nánari ákvörðun á Valhallarplani þar sem hótelið stóð áður.