![Starfsmenn Arctic trucks ásamt einstaklingum frá finnsku og þýsku pólarstofnununum eftir þjálfunina á Vatnajökli.]()
Síðustu vikur hafa 15 einstaklingar frá erlendum heimskautastofnunum komið hingað til lands á vegum jeppabreytingafyrirtækisins Arctic Trucks til að læra akstur í snjó, almennt viðhald bíla í heimskautaaðstæðum og akstur á jöklum. Á þessu ári verða fjórir bílar seldir til slíkra stofnana.