![Hluti þeirra 12 sýrlensku flóttamanna sem Frans páfi tók með sér frá Lesbos á laugardag.]()
Fimm mánuðum eftir að þau yfirgáfu heimili sitt í einu af úthverfum Damaskus, þá eru sýrlensku hjónin Hassan og Nour og tveggja ára sonur þeirra Riad, gestir Frans páfa í Páfagarði, eftir að páfi tók þau og tvær aðrar múslima fjölskyldur með sér frá eyjunni Lesbos sl. laugardag.