![Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.]()
Ekkert mark er takandi á yfirlýsingum um eignir í skattaskjólum nema að ítarleg gögn liggi þar að baki. Í mörgum skattaskjólum halda yfirvöld engar skrár yfir eignir manna og því getur skattrannsóknaryfirvöldum hér á landi reynst ómögulegt að sannreyna slíkt. Þetta segir Árni Páll Árnason.