![Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.]()
Eigendur tryggingafélaga sitja eftir með skömmina af því að taka út arð úr félögunum langt umfram hagnað, að sögn Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra. Hann telur þó ekki lagagrundvöll fyrir ríkið að skerast í leikinn. Forsætisráðherra segir greiðslurnar ekki í anda laga um vátryggingafélög.