![Helstu leikendur í forvali flokkanna vestanhafs. Frá vinstri: Marco Rubio, Ted Cruz, Bernie Sanders, Donald Trump og Hillary Clinton.]()
Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að það verði Hillary Clinton og Donald Trump sem muni bítast um embætti forseta Bandaríkjanna eftir niðurstöður forvals flokka þeirra í gær. Framboð Bernie Sanders er að líkindum senn á enda og ráðandi öfl í Repúblikanaflokknum sitja eftir með tvo slæma kosti.