![Frá undirritun nýrra búvörusamninga sl. föstudag.]()
Nýgerðir búvörusamningar valda miklum vonbrigðum að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ. Hann segir að samningurinn sé bæði vondur fyrir bændur og neytendur. Tækifæri til að móta nýja og sókndjarfa stefnu hafi verið sólundað. Gylfi treystir því að bæði Alþingi og bændur hafni honum.