![Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs.]()
Kópavogsbær væri mögulega til í að gefa eftir byggingarréttargjöld ef verið er að byggja íbúðir sem eru fyrsta eign fólks. Sala lóða ætti annars að vera á markaðsverði, enda mikilvægur tekjuliður sveitarfélaga. Þetta sagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, á Fasteignaráðstefnu í gær.