![Staða foreldra á húsnæðismarkaði hefur áhrif á aðbúnað barna þeirra.]()
Staða barna sem eiga foreldra sem búa í leiguhúsnæði hefur versnað töluvert samkvæmt skýrslu UNICEF á Íslandi. Hlutfall barna í þessum hópi sem búa við skort hefur nær þrefaldast. Börn þeirra sem eru á leigumarkaði búa við umtalsvert meiri skort á öllum sviðum en þeirra sem búa í eigin húsnæði.