![Rétt við Eldvatnsbrúnna í Skaftártungum. Þar fer meirihlutinn af hlaupvatninu í gegn.]()
Skaftárhlaupið ætti að ná hámarki seint annað kvöld eða aðra nótt. Mælar við Sveinstind sýna enn að vatnsrennslið er að aukast og því mun rennsli í byggð halda áfram að aukast á næstu klukkustundum. Á þriðja tug starfsmanna lögreglu, Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar munu fylgjast með í nótt.