![Lars Lokke Rasmussen, verðandi forsætisráðherra Danmerkur.]()
Lars Løkke Rasmussen, formaður Venstre og forsætisráðherraefni bláu blokkarinnar, var allt annað en sigurreifur þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína eftir þingkosningarnar í gærkvöldi. Hann viðurkenndi fúslega að flokkurinn hefði ekki fengið nægilega góða kosningu.