![Ilmur segir eldri borgara vera fjölbreyttan hóp.]()
„Það er ljóst að við þurfum að hagræða í borginni og það hefur áhrif á öll starfssvið sveitarfélagsins. Við reynum eftir ýtrasta megni að láta það ekki bitna á þeim sem mest þurfa á þjónustu að halda,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar um skerðingu heimaþjónustu.