![Trump skýtur fast á Sessions í viðtalinu.]()
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki vera með neinn dómsmálaráðherra í ríkisstjórn sinni. Ummælin lét forsetinn falla í viðtali við sjónvarpsstöðina Hill.TV og þau eru harðasta árás sem hann hefur gert hingað til á Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.