![Horfðu á þetta andlit! Geta Bandaríkjamenn hugsað sér að kjósa Carly Fiorina sem næsta forseta þjóðarinnar?]()
Enn móðgar auðkýfingurinn Donald Trump konur með ummælum sínum í slagnum um útnefningu Repúblikanaflokksins vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári. Ekki er þó að sjá að strigakjafturinn sé dragbítur á honum; fylgi Trumps meðal kvenna er á hraðri uppleið.