Quantcast
Channel: mbl.is - Helstu fréttir
Viewing all 22493 articles
Browse latest View live

„Jafnvel þó ekki sé beðið um aðstoð“

$
0
0
Forystumenn ríkja Evrópusambandsins lýstu á fundi sínum fyrir helgi yfir stuðningi við tillögu framkvæmdastjórnar sambandsins þess efnis að sett verði á fót landamæralögregla og strandgæsla á vegum þess.

Kysi helst fangelsið áfram

$
0
0
Maðurinn hefur dvalið á Kvíabryggju undanfarnar vikur. Hollenskur karlmaður á þrítugsaldri sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá septemberlokum kysi helst að vera áfram á Kvíabryggju meðan hann þarf að dvelja á landinu. Þetta segir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi mannsins, í samtali við mbl.is, en gæsluvarðhald yfir honum og þremur öðrum sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli rennur út í dag.

Rúm milljón manna flúið til Evrópu

$
0
0
Sjálfboðaliðar ganga á hrúgu björgunarvesta sem skilin hafa verið eftir af flóttamönnum á grísku eyjunni Lesbos. Rúmlega ein milljón manna hefur nú komið til Evrópu það sem af er þessu ári, í leit að betra lífi. Þetta kemur fram í nýjustu tölum frá Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni. Fólksflutningar hafa aldrei verið meiri í álfunni síðan í kjölfar síðari heimsstyrjaldar.

„Platseðill“ vakti mesta athygli

$
0
0
Helena Natalía Albertsdóttir mátti ekki nota 10.000 krónu seðil í Hagkaup. Það vakti mikla athygli. Nú þegar árið er senn á enda er ekki úr vegi að líta yfir viðskiptafréttirnar sem vöktu mesta athygli á árinu 2015. Þær eru af ýmsum toga.

Hollendingurinn áfram á Íslandi

$
0
0
Farbannsúrskurðurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness núna síðdegis. Hollendingur sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu fíkniefnasmygli var úrskurðaður í farbann til 19. janúar í héraðsdómi Reykjaness í dag. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi hér á landi ásamt samlanda sínum og tveimur Íslendingum frá septemberlokum.

Banaslys við Einarsstaði

$
0
0
Einn er látinn eftir alvarlegt bílslys við bæ­inn Ein­arsstaði í Kræk­linga­hlíð, skammt norðan Akur­eyr­ar. Ekki er unnt að veita nánari upplýsingar um viðkomandi að svo stöddu.

Húfur merktar Íslandi á Lesbos

$
0
0
Kalt er í veðri á grísku eyjunni Lesbos að sögn Þórunnar Ólafsdóttur formanns samtakanna Akkeris. Vinnur hún við að deila út fatnaði til flóttamanna sem þangað koma. Fyrr í dag opnaði hún kassa með fötum til útdeilingar þegar við henni blasti þessi sýn.

Jólakúlurnar kláruðust

$
0
0
Það gekk vel hjá Geitungunum að selja jólakúlurnar sínar í Jólaþorpinu í Hafnarfirði. Kúlurnar kláruðust en þær voru seldar í fjáröflun þeirra en Geitungarnir er verkefni þar sem ungt fólk með fatlanir fær stuðning á vinnumarkaðnum. mbl.is kíkti á Geitungana en verkefnið fór af stað í haust.

Opnar ljótasta pítsustað bæjarins

$
0
0
Unnar Helgi Daníelsson hefur í nógu að snúast.Það eru líklega ekki margir 25 ára gamlir strákar á landinu sem eiga þrjú fyrirtæki. Unnar Helgi Daníelsson opnaði pítsustað fyrir helgi og setur markið hátt. Hann sér fyrir sér keðju af ljótustu pítsaustöðum bæjarins á næstu misserum.

Berbrjósta kvenskörungar tóku árið í nefið

$
0
0
Frá aldarafmælishátíð kosningaréttar kvenna þann 19. júní 2015.Íslenskar konur unnu ýmis afrek á árinu sem einstaklingar. Stærstu afrek þessa hluta þjóðarinnar árið 2015 hafa hinsvegar með glerþakið svokallaða að gera en eftir geirvörtubyltingu, túrvæðingu og almenna samstöðu ársins er það heldur betur laskað.

„Viljum ekki enda á götunni“

$
0
0
Sýrlensku hjónin Wael Aliya­dah og Feryal Alda­hash hafa búið á Íslandi í um fimm mánuði ásamt tveimur ungum dætrum sínum. Þar sem þau hafa þegar fengið hæli í Grikklandi fær hælisumsókn þeirra hins vegar ekki efnislega meðferð hjá Útlendingastofnun og stendur því til að vísa þeim úr landi.

Allt stefnir í hvít en köld jól

$
0
0
Jólin verða hvít í ár.„Við búumst við því að það falli snjór um mestallt land á Þorláksmessu svo það eru ágætis líkur á að það verði hvít jól,“ segir Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofunni.

Lýst upp á stysta degi ársins

$
0
0
Vetrarsólstöður voru í gær og var gærdagurinn þar með sá stysti á árinu aðeins 4 klst. og 8 mínútur. Fólk lýsir upp skammdegið með jólaljósum sem draga úr áhrifum myrkursins og það var fallegt um að litast við Lækinn í Hafnarfirði í gær. mbl.is kíkti á ljósin í skammdeginu.

„Löglegt en algjörlega siðlaust“

$
0
0
Eignarhaldsfélagið Arctic, sem er í eigu sama aðila og á Drífu ehf., sem heldur utan um rekstur Icewear verslananna, keypti húsnæði The Viking og Vísis fyrir ári síðan og ætlar að opna þar verslun. Héraðsdómur Reykjavíkur veitti í morgun eignarhaldsfélaginu Arctic, sem er í eigu sama aðila og á Icewear búðirnar, heimild til þess að bera út verslanirnar The Viking og Vísi á Laugavegi. Félagið keypti húsnæðið fyrir síðustu áramót og hyggst opna þar eigin verslun.

Deiliskipulagið auglýst aftur

$
0
0
Fundað var um Reykjavíkurflugvöll í morgun. Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á fundi umhverfis - og skipulagsráðs að auglýsa að nýju breytingar á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar.

634 þúsund lítrar seldir

$
0
0
Það verður eflaust margt um manninn í dag og á morgun í verslunum ÁTVR. 34 teg­und­ir jóla­bjórs og 43 vör­u­núm­er voru í hill­um ÁTVR í ár. Úr­val jóla­bjórs hef­ur aldrei verið meira en minna hefur þó selst af honum en á síðasta ári.

Nauðsynlegt að krefjast útburðar

$
0
0
Eigandi Icewear segir það hafa verið nauðsynlegt að krefjast útburðar. Eiganda verslananna The Viking og Vísis var gefinn frestur til 1. júlí sl. til þess að rýma húsnæðið. Það hefur hann ekki gert og því var farið fram á útburð.

Að vera andstyggilegur undir rós

$
0
0
Erna Mist og Þóroddur Bjarnason.Það eru engin mörk þegar unnið er með húmor, það má grínast með nánast allt. Í myndasögum Þórodds Bjarnasonar um kindur er m.a. undirliggjandi ádeila á sauðshátt mannfólksins og fjármálaruglið. Brandararnir hennar Ernu Mistar eru byggðir á fáfræði sem hún verður vitni að í umhverfi sínu.

Brotsjór eyðilagði öll tækin

$
0
0
Auður Vésteins SU-88„Þetta var mjög skrítið því það var mjög gott sjólag. Það var búin að vera alger blíða í róðrinum en hann var aðeins farinn að hvessa svona í lokin. Síðan sneru þeir upp í og voru að taka stefnuna að landi þá myndaðist upp úr þurru svakalegur hnútur.“

3.300 jólakveðjur lesnar í ár

$
0
0
Anna Sigríður við lesturinn. Sumar hefðir deyja út á nýjum tímum og með tilkomu nýrrar tækni en jólakveðjurnar á Rás 1 eru ekki þeirra á meðal. Ef eitthvað hafa kveðjurnar vaxið í vinsældum og í ár munu þulir Ríkisútvarpsins lesa fleiri jólakveðjur en nokkru sinni fyrr; 3.300 talsins.
Viewing all 22493 articles
Browse latest View live