![Fasteignaverð í höfuðborginni hefur farið síhækkandi.]()
Það getur reynst þrautin þyngri fyrir ungt fólk í dag að kaupa sína fyrstu eign. Fasteignaverð hefur farið síhækkandi og ekki allir geta staðið straum af þeim útgjöldum sem fylgja fyrstu kaupum. Í kjölfarið hefur það aukist að lánsbeiðni hefur verið hærri en sem nemur viðmiðum lánastofnana.