![Gullsmiðjan í Hafnarfirði]()
Þrír karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru í síðustu viku dæmdir í fangelsi vegna vopnaðs ráns í Gullsmiðjunni í Hafnarfirði. Einn þeirra var þar að auki dæmdur fyrir að hafa skotið að sérsveitarmönnum með öflugri gasbyssu þegar handtaka átti hann.