![Ekki eru til margar myndir af Yo-jung en þessar birti suðurkóreski miðillinn Chosun Ilbo á síðasta ári.]()
Á flokksþingi Verkamannaflokks Norður-Kóreu er búist við því að systir Kim Jong-un leiðtoga landsins, Kim Yo-jong, muni taka við mikilvægu hlutverki í stjórn landsins. Það hefur ekki mikið farið fyrir systur þessa umdeilda þjóðarleiðtoga en hún er sögð ljúf að eðlisfari og hálfgerð strákastelpa.