![]()
Lögreglan handtók karlmann á fertugsaldri á Hverfisgötu um hálf tíu leytið í morgun en maðurinn, sem var vopnaður tveimur hnífum, hafði ógnað öðrum með hnífunum. Maðurinn var í annarlegu ástandi bæði vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu og er hann vistaður í fangaklefa.