![Steinninn sem maðurinn stóð á er fyrir miðju myndarinnar.]()
Fjöldi fólks stofnaði sér í voða í Reynisfjöru aðeins örfáum tímum eftir að kínverskur ferðamaður lét þar lífið á miðvikudag. Þetta segir Hjálmar Georgsson leiðsögumaður sem kom á staðinn skömmu síðar. Hann segir eiginkonu og börn mannsins hafa verið í losti.